Fara í efni

Lingó kynnir nám í skapandi greinum í útlöndum

Næstkomandi mánudag, 8. febrúar, verður svokölluð Lingó-námskynnng í M01 í VMA kl. 11: 45 til 13:00 og í stofu G08 milli kl. 13:15 og 14:00. Lingó er vottaður umboðsaðili fyrir nokkra af þekktustu hönnunar- og listaskólum í Evrópu og víðar. Um tíu ára skeið hefur Lingó rekið ráðgjafarstofu fyrir nema sem sækja um skólavist hjá alþjóðlegum fagháskólum sem bjóða nám á sviði skapandi greina.

Á kynningunni verður Hilary Colvey með ráðgjöf varðandi möppugerð og leiðbeiningar um ferilskrá fyrir þá sem lengra eru komnir.