Fara í efni

Skólasóknarreglur

Skólasóknarreglur 

  • Nemendur skulu sækja allar kennslustundir, mæta stundvíslega og undirbúnir, vera virkir og skila verkefnum á tilsettum tíma.
  • Kennari merkir við í upphafi kennslustundar. Komi nemandi eftir að nafnakalli er lokið telst hann koma of seint. Nemandi telst fjarverandi úr kennslustund ef hann kemur eftir að 15 mínútur eru liðnar af kennslustundinni. Sé nemandi fjarverandi í kennslustund hlýtur hann 1 fjarvistarstig. Komi nemandi of seint í kennslustund hlýtur hann ½ fjarvistarstig og fari nemandi án leyfis úr kennslustund áður en henni lýkur hlýtur hann 1 fjarvistarstig.
  • Yfirlit yfir skólasókn er sent í tölvupósti reglulega.  Yfirlit gildir sem áminning ef viðvera í einstökum áföngum uppfyllir ekki lágmarkskröfu um skólasókn samkvæmt skráningu í Innu.
  • Svigrúm vegna fjarvista miðast við 80% mætingu á önninni. Það þýðir að ef nemandi er fjarverandi meira en 20% í áfanga á önninni telst hann hafa sagt sig frá námi í áfanganum.  Sjá útskýringarmynd úr Innu.
  • Veikindi eða önnur forföll ber að tilkynna samdægurs í gegnum Innu. Forráðamenn þurfa að tilkynna veikindi nemenda undir sjálfræðisaldri og gera það í gegnum Innu.
  • Veikindi teljast sem fjarvistir en undir ákveðnum kringumstæðum er heimilt að taka tillit til þeirra. Það er á ábyrgð nemenda að koma skýringum á fjarvistum (t.d. vottorðum vegna lengri veikinda sé þess óskað) til sviðsstjóra.
  • Skipulag skólans er sett upp á dagatali á heimasíðu hans, frá önn til annar. Að öllu jafna eru ekki gerðar breytingar á birtu skóladagatali en óhjákvæmilega getur þurft að gera það og þá eru nemendur og forráðamenn upplýstir um það.
  • Ferðir/æfingar á vegum landsliða í íþróttum telja ekki til fjarvistarstiga. Til að fá leyfi án stiga þarf skólinn að fá staðfestingu á þátttöku nemendans frá viðkomandi sérsambandi.

Skólasóknarreglur - Vinnubrögð

Hlutverk nemenda

  • Nemendur bera ábyrgð á eigin námi og þar með viðveru í kennslustundum. Þeir eiga að fylgjast með stöðu sinni í Innu og skulu þekkja þær reglur sem gilda um skólasókn.
  • Nemendum ber að tilkynna veikindi og önnur forföll. Forráðamenn nemenda undir 18 ára og nemendur eldri en 18 ára skrá veikindi/skammtímaforföll í Innu samdægurs. Lengri forföll og veikindi ber að tilkynna sérstaklega til sviðsstjóra.
  • Frávik frá skólasóknarreglum veitir ekki undanþágu frá námsmatsþáttum áfanga.

Hlutverk kennara

  • Kennarar skrá viðveru í kennslustundum. Viðvera er jafnan skráð í Innu daglega.
  • Ef nemandi er fjarverandi úr kennslustund, ber kennara að merkja við hann sem fjarverandi.
  • Kennarar fylgjast með fjarvistum nemenda sinna og upplýsa nemendur þegar fjarvistir þeirra eru að nálgast það hámark sem skólinn setur.
  • Kennarar gefa nemendum ekki  leyfi úr tímum. Leyfi eru aðeins veitt af skólameistara / aðstoðarskólameistara og sviðsstjórum við sérstakar aðstæður og þá skráð í Innu

Hlutverk skráðs umsjónarkennara

  • Allir nemendur í dagskóla eru skráðir með umsjón. Nýnemar eru í umsjón hjá sérstökum umsjónarkennurum en aðrir nemendur hjá brautarstjórum og sviðsstjórum.
  • Það er hlutverk umsjónarkennara að fylgjast með skólasókn umsjónarnemenda sinna og benda þeim á ef hún er óviðunandi. Ef nemandi er yngri en 18 ára þá er það jafnframt hlutverk umsjónarkennara að hafa samband við forráðamenn ef ástæða er til.

Meðferð og úrlausn mála, viðurlög

  • Sviðsstjóri sendir reglulega yfirlit yfir skólasókn til nemanda í tölvupósti. Forráðamenn nemenda yngri en 18 ára fá afrit af tölvupóstum.  Yfirlit gildir sem áminning ef viðvera í einstökum áföngum uppfyllir ekki lágmarkskröfu um skólasókn samkvæmt skráningu í Innu. Nemanda býðst að koma til sviðstjóra til að fara yfir stöðuna og skoða hvort gögn/skýringar séu á fjarvistum. Ef nemandi sinnir ekki þessari boðun er litið svo á að hann hafi engar skýringar á fjarvistum sínum og honum vísað úr áfanga/skóla.

    Ef fullnægjandi skýringar liggja fyrir getur nemandinn fengið heimild til áframhaldandi setu í áfanganum með ströngum skilyrðum um mætingar til loka annar. Þessi ákvörðun er tekin í samráði við kennara í áfanganum.

  

Undanþága frá þessum reglum er yfirleitt ekki veitt og þá einungis af skólameistara/aðstoðarskólameistara eða sviðsstjórum.

Sjá nánar í reglugerð nr. 326/2016 um ábyrgð og skyldur aðila skólasamfélagsins í framhaldsskólum.  

 Uppfært 20. febrúar 2024 (áfangastjórn).

Getum við bætt efni síðunnar?