Fara í efni

Grunnnám bygginga- og mannvirkjagreina (GNB)

Meginmarkmið grunnnáms bygginga- og mannvirkjagreina er að veita nemendum sýn á atvinnugreinina og störf innan hennar. Lögð er áhersla á kennslu undirstöðuatriða í efnisfræði, áhalda- og tækjafræði, teikningum, verktækni og vinnuvernd. Í lok grunnnámsins eiga nemendur að vera hæfari til að velja sér sérsvið innan bygginga- og mannvirkjaiðnaðar og hafa fengið faglegan grunn til að byggja áframhaldandi nám á.  Námið er ein önn en síðan tekur við sérhæfing í þeirri byggingagrein sem nemendur velja.

Inntökuskilyrði á brautina eru að nemendur hafi lokið kjarnagreinum grunnskóla með fullnægjandi árangri. Námsárangur í kjarnagreinum mun einnig hafa áhrif á inn á hvaða þrep nemandinn innritast. Ef fleiri sækja um nám á brautinni en skólinn getur tekið við getur inntökuviðmið orðið hærra en lágmarkið.

Nám á brautinni er ein önn, alls 30 einingar. Til að standast námsmat í áfanga og fá heimild til að hefja nám í eftirfarandi áfanga þarf lágmarkseinkunnina 5. Reglur um námsframvindu eru birtar í skólanámskrá.

Brautarkjarni                 1.ÞREP 2.ÞREP
Stærðfræði STÆF 2RH05     0 5
Heilsa og lífstíll HEIL 1HD04
    4 0
Lífsleikni LÍFS 1SN02     2 0
Grunnteikning GRUN 1FF04     4 0
Trésmíði TRÉS 1SL06 1AB01   7 0
Efnisfræði EFRÆ 1BV05     5 0
Framkvæmdir og vinnuvernd
 FRVV 1SR03     3 0
             
ALLS       30 einingar    

                             

Niðurröðun á annir

Grunnnám
 EFRÆ1BV05
 FRVV1SR03
 GRUN1FF04
 HEIL1HD/HN04
 LÍFS1SN02
 STÆF2RH05
 TRÉS1AB01
 TRÉS1SL06
 
 
30

 

31. maí 2018

 

 
Getum við bætt efni síðunnar?