Bókasafn

Bókasafnsdagurinn 2012 Glærusýning með ljósmyndum sem sendar voru inn í ljósmyndasamkeppnina : "Lestur er bestur" Verðlaunastuttmyndin "Sveitalestur" sem

Bókasafn VMA

Bókasafnsdagurinn 2012

Glærusýning með ljósmyndum sem sendar voru inn í ljósmyndasamkeppnina : "Lestur er bestur"

Verðlaunastuttmyndin "Sveitalestur" sem þeir Atli Arnarsson og Gísli Gíslason gerðu um slagorð dagsins: "Lestur er bestur" . Þótti myndin koma þeim skilaboðum vel á framfæri auk þess að vera fallega tekin og klippt.

Hvers vegna bókasafnið?

Nú, t.d. vegna þess að:

  • þú ert að skrifa söguritgerð um íslenska galdramenn
  • þig vantar upplýsingar um framhaldsnám
  • þú ætlar á puttanum til Kína og vantar upplýsingar um helstu áningarstaði
  • þig langar til að sjá sýninguna um bókverk sem nemendur á listnámsbraut settu upp á bókasafninu
  • þig langar til að lesa nýútkomið Bændablað
  • þú ert í líffræðitíma og vantar góða litprentaða mynd af alfriðuðum fugli á Íslandi
  • Þér finnst gott að nýta tímann í lesstofunni til að undirbúa morgundaginn 
  • þú ætlar að velja þér tímarit til að lesa i rólegheitum áður en næsti tími byrjar

Verkmenntaskólinn á Akureyri

Hringteig 2
600 Akureyri
Sími 464 0300 / Fax 464 0301
Kt. 531083-0759
vma@vma.is

Skrifstofa VMA
er opin alla virka daga frá kl. 08:00 - 15:00