Hvar finn ég MAC addressuna á fartölvunni minni?
| Til að tengja fartölvu við
þráðlaust net Verkmenntaskólans þarf að
skila inn svokölluðu MAC númeri eða MAC addressu, sem
er tólf stafa númer samsett úr bæði tölum
og bókstöfum. Margir vita ekki hvar hægt er að nálgast
þetta númer. Hér eru tvær tillögur:
Skoða leiðbeiningar fyrir Mac Wireless (Airport) Skoða leiðbeiningar fyrir Mac OS X (Ethetnet |
|
| 1. Einfalda aðferðin
Hugsast getur að MAC númer þráðlausa kortsins sé prentað á miða neðan á tölvunni. Veltu henni við og athugaðu hvort einhverst staðar stendur „MAC Address“ eða eitthvað álíka og síðan tólf tölur og bókstafir. Það er talnarunan sem þú ert að leita að. Skrifaðu hana hjá þér. |
![]() |
| 2. Ekki alveg jafn einfalda aðferðin
Ef númerið er ekki prentað á botn tölvunnar, þá þarf að biðja hana að gefa upp þetta númer. Það er gert svona: Smelltu á START og síðan RUN. |
![]() |
| Í talgluggann sem kemur upp skaltu rita CMD og síðan smella á OK | ![]() |
| Þeir sem eru með Windows Wista smella á Windows hnappinn í neðar horninu vinstra megin og rita CMD í leitarlínuna og ýta svo á <Enter> lykilinn á lyklaborðinu | ![]() |
| Nú opnast svokallaður DOS gluggi
og þar skaltu rita ipconfig/all
og síðan ýta á Enter hnappinn á lyklaborðinu.
Þá koma alls kyns tölu-upplýsingar um tölvuna
þína.
Undir fyrirsögninni „Ethernet adapter Wireless Network Connection“ finnur þú „Physical Address“. Það er talnarunan sem þú ert að leita að. Skrifaðu hana hjá þér. |
![]() |





Moodle



