Tómstundaherbergi B-06

Á opnu dögunum var boðið fólki upp á tómstundaherbergi inni í stofu B-06. Þar fékk fólk að koma með sín eigin spil eða notast við þau spil sem skólinn hefur upp á að bjóða. Aðsókn var nokkuð góð og komu nokkrir með sín eigin spil.
Þegar einn fréttamaður fjölmiðahópsins kom inn í tómstundaherbergið voru þrír hópar í gangi. Einn hópurinn var að spila Póker, einn var að spila spilið Stjórinn og þriðji hópurinn var að spila Magic The Gathering (sem hefur sést spilað ofan í Gryfjunni á skólatímum).Fréttamaður, ásamt ljósmyndara, fór á stúfana til þess að athuga eiginleika þessara ákveðnu spila og hvað það væri sem gerði þau svona áhugaverð.
Magic The Gathering:
Áhugamenn Magic voru öll sammála um að til þess að getað spilað spilið þyrfti maður að búa yfir herkænsku og
rökhugsun. Hver leikmaður hefur eitt „deck“ í spili, eða spilastokk eins og það er kallað á góðri íslensku.
Markmið leiksins er að drepa andstæðinginn og vera sá eini eftir á lífi.
Þegar leikmenn voru spurðir hvað það væri sem væri svona áhugavert við spilið svöruðu þeir því að þetta
væri góð leið til þess að drepa tímann og þjálfa hugann í herkænsku og rökhugsun, auk þess sem enskukunnátta eykst
við spilun. Spilarar hér í skólanum eru á aldrinum 16 til 20 ára en auðvitað er fólk á öllum aldri að spila
þetta spil út um mest allan heim.
Ég tók á tal Stefán Þór, einn af reyndustu Magic spilurum VMA, sem sagði að ástæðan fyrir því að hann
byrjaði í Magic væri gífurlegur áhugi hans á safnkortaspilum. Hann og vinur hans Þorvaldur byrjuðu í Magic fyrir u.þ.b. 4 - 5
árum og telja þeir sig bera ábyrgð á þessari nýju tískubylgju innan vinahópsins og vona þeir að þetta verði hið
„nýja norm“. Aðspurður hvort hann teldi sig hið týpíska nörd sagðist hann ekki vera hin týpíska
„ímynd“ af nördi en samt veit hann að hann er mikið nörd í sér.
Að lokum vildi Stefán benda á www.playmagic.comfyrir þá sem hafa áhuga á að skoða spilið eða vilja
byrja að spila og www.magicthegathering.com.
Stjórinn:
Eins og spilið Magic telja áhugamenn Stjórans, sem voru á aldrinum 17 – 18 ára, að spilið krefst herkænsku til þess að spila
það en samt meiri heppni, u.þ.b. 90% heppni og 10% herkænska.
Eftir að hafa fylgst með þeim spila í einhvern tíma tók fréttamaður eftir því að spilinu svipaði örlítið til
spilsins Monopoly að því leiti að spilarar þurfa að stunda kaup og sölur á leikmönnum auk þess sem hægt er að skipta þeim
út. Spilið hentar einstaklega vel til þeirra sem hafa áhuga á viðskiptum og fótbolta.
Póker:
Seinasta spilið sem verið var að spila var Póker. Því miður gleymdist að spyrja hvaða Póker væri verið að spila en
okkur hér í fjölmiðlahópnum grunaði að það gæti hafa verið Texas Hold’em. Spilararnir, sem voru 17 ára
gamlir, sögðu að eins og hin spilin sem voru í spilun krefðist póker mikillar herkænsku, aftur á móti þurfti ekki eins
mikla heppni eins og í Stjóranum heldur einungis um 10%, auk þess sem það er mjög nauðsynlegt að getað blekkt andstæðinginn eða
„blöffað“ hann. Til þess þarf að þekkja inná andstæðinginn, eða að minnst kosti kunna örlítið
að lesa fólk. Þá fær maður tilfinningu fyrir því hvenær á að „raisa“ og hvenær á að
„folda“.
Að lokum spurði ég þau að því hvað gerði það að verkum að Póker héldi áhuga þeirra og þau voru
öll sammála um að það væri mest megins spennan.
Eftir þessa heimsókn var fréttamaður sannfærður um það að nauðsynlegir eiginleikar í spilum fyrir ungt fólk nú til dags væri herkænska og ögn af heilaleikfimi.
Moodle





