Verkmenntaskólinn á Akureyri

Verkmenntaskólinn á Akureyri

Fréttir

Nemendur ánægðir í VMA

Ánægjan vex
Ánægjan vex
Í kennslukönnun frá vorönn 2009, sem nú hefur verið birt á vef skólans, þá segist yfirgnæfandi meirihluti nemenda vera ánægður með kennsluna í Verkmenntaskólanum á Akureyri.

Samkvæmt gæðamarkmiðum VMA er stefnt að því að 75% nemenda svari spurningunni Ég er ánægð(ur) með kennsluna með því að svara mjög svo eða nokkuð svo.  Í kennslukönnun á vorönn 2009 voru það 81% aðspurðra sem svöruðu þannig.  Aðeins 2% voru mjög óánægðir.


Niðurstaða úr þessari spurningu á haustönn 2007 var 73%, á vorönn 2008 74%, og á haustönn 2008 78%, sem sýnir að skólinn er í mikilli framför.  Meðaltal við þessari spurningu er 76,57% þannig að gæðamarkmið VMA nást miðað við meðaltal síðustu fjögurra anna. Með því að skoða þetta margar annir saman er hægt að  ná öllum skólanum inn í svörunina.

Þegar spurt er um ýmislegt í fari og starfi kennara koma ýmsar áhugaverðar upplýsingar fram.  Til dæmis telja rúm 92% nemenda að kennari kunni vel sitt fag og rúmum 90% nemenda finnst kennarar hafa örugga framkomu.  Því verður ekki neitað að svörin við nær öllum spurningunum eru afskaplega jákvæð og ánægjuleg.

Könnunin á vorönnn 2009 var lögð fyrir nemendur á listnámsbraut, í byggingagreinum, hjúkrunargreinum, íþróttum og samfélagsgreinum, eða alls 27 kennarar. Alls svöruðu 1639 nemendur könnunni.


Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.12 2007 - Stefna ehf

Skrá inn